Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um tíuleytið í gærkvöldi í vegna vatnsleka í húsnæði Hjálpræðishersins í Reykjavík. Að sögn varðstjóra hjá SHS varð bilun í vatnsúðakerfi í einu herbergi með þeim afleiðingum að vatn lak inn í fjögur herbergi og kjallara hússins.
Nokkuð tjón varð og að sögn SHS lak vatn niður a.m.k. þrjár hæðir.