Sala áfengis í febrúar var 0,3% minni en í febrúar í fyrra, samkvæmt tölum frá ÁTVR.
Segir fyrirtækið, að sala í léttum vínum hafi aukist milli ára, um 6% í rauðvíni og 12% í hvítvíni. Sala hafi hins vegar dregist saman í brennivíni og vodka um 10,6% og lagerbjór um 1,6%.