Bænastund vegna Japans

Grafarvogskirkja
Grafarvogskirkja Jim Smart

Bænastund verður í Grafarvogskirkju í kvöld vegna náttúruhamfaranna í Japan. Stundin hefst klukkan 20.00. „Við ætlum að kalla saman þá sem vilja koma og biðja fyrir fórnalömbum og japönsku þjóðinni,“ sagði Bjarni Þór Bjarnason, prestur í Grafarvogskirkju.

Hann sagði að Japanir sem búa hér muni koma á stundina. Bjarni Þór sagði að allir, sem vilja biðja fyrir fólki í neyð, séu velkomnir á stundina, jafnt kristnir og þeir sem aðhyllast önnur trúarbrög. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert