Íslenskar bílaleigur hafa gengið frá samningum um kaup á 409 Toyota bifreiðum það sem af er árinu. Bílarnir eru væntanlegir til landsins á næstu vikum og verður afhendingu lokið fyrir sumarvertíðina. Flestir bílarnir eru af Yaris, Auris og Land Cruiser gerð.
Í fréttatilkynningu segir að sala á Toyotabifreiðum til bílaleiga sé umtalsvert meiri í ár en í fyrra. Árið 2010 voru 318 Toyotabifreiðar skráðar sem bílaleigubílar og er aukningin milli ára því 28,6%.