Engin slys urðu á fólki þegar mjólkurbíll valt í Víkurskarði um fimm leytið í gær. Bíllinn var hlaðinn mysu og lak hún út úr bílnum og mynduðust býsna miklir mysupollar, að sögn lögreglunnar á Húsavík.
Bílstjórinn var einn í bílnum og var farið með hann til læknis eftir slysið til skoðunar. Hann mun ekki vera slasaður.