Rýnifundi um 19. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, félags- og
vinnumál, lauk í Brussel í gær. Á fundinum, sem var sá síðari af
tveimur, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum
samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Harald Aspelund, formaður
samningahóps um EES II málefni en 19. kafli er hluti af EES-samningnum.
Flestar gerðir Evrópusambandsins á sviðinu eru þegar innleiddar. Ekki
var rætt um undanþágur, aðlögun eða sérlausnir, en lögð var áhersla á að
reglur Evrópusambandsins leiði ekki til undirboða á íslenskum
vinnumarkaði.