Nöfn fyrirtækja eru oft athyglisverð. Það má með sanni segja um fyrirtækið ÖÖÖÖÖÖÖÖ, kt. 510806-0340, á Hvolsvelli.
Með úrskurði héraðsdóms Suðurlands uppkveðnum 25. nóvember 2010 var bú ÖÖÖÖÖÖÖÖ tekið til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu var samtals lýst kröfum í búið að fjárhæð krónur 4.803.839. Engar eignir fundust í búinu og var skiptum lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipti.