Skíðasvæðin í Bláfjöllum, Oddsskarði, Hlíðarfjalli og Tindastóli verða öll opnuð klukkan 10 og aðstæður eru mjög góðar á öllum stöðunum þremur að sögn staðarhaldara. Svæðin verða öll opin til kl. 16 í dag nema hvað opið er til kl. 17 í Bláfjöllum.
Mikill snjór er og gott færi á öllunum svæðunum. Á Akureyri er nú 13 stiga frost, örlítill vindur og glaða sólskin. Í Bláfjöllum er 8,5 stiga frost og vindur 6-8 m/sek.