„Við ætlum ekki lengur að vinna í umhverfi sem tortryggir störf okkar og reynir að beisla málfrelsi okkar. Það á bæði við um forystu okkar eigin flokks og samstarfsflokksins í ríkisstjórn.“ Þetta segja Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir í yfirlýsingu þar sem þau skýra ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki VG.
„Við höfum ítrekað mátt sæta ómálefnalegum ásökunum í okkar garð frá formanni Samfylkingarinnar og einstökum þingmönnum þess flokks.
Við treystum okkur ekki lengur til að styðja skilyrðislaust núverandi ríkisstjórn eða bera ábyrgð á stefnu hennar og vinnubrögðum. Við munum hins vegar standa óháð vaktina fyrir stefnumálum VG og starfa í þeim anda bæði innan VG og á Alþingi,“ segja Atli og Lilja í yfirlýsingunni.