Vilja innkalla aflaheimildir

Á aðalfundi voru samþykktar tvær áskoranir til ríkisstjórnarinnar og þingflokks …
Á aðalfundi voru samþykktar tvær áskoranir til ríkisstjórnarinnar og þingflokks Samfylkingarinnar. Ómar Óskarsson

Samfylkingin á Akureyri skorar á ríkisstjórn Íslands og þingflokk Samfylkingarinnar að standa við fyrirheit í stefnu flokksins og samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um innköllun allra aflaheimilda. Flokkurinn leggur áherslu á að skýr ákvæði um þjóðareign auðlinda verði fest í stjórnarskrá og að endurúthlutun tímabundinna aflaheimilda fari fram í opnum viðskiptum.

Flokkurinn skorar einnig á ríkisstjórnina og þingflokk Samfylkingarinnar að beita sér til árangurs fyrir skarpari og réttlátari uppstokkun fjármálakerfisins. Áhersla er lögð á að jafnaðarmenn komi á skilvirku eftirliti með fjármálamarkaði þannig að unnt verði að hemja áhættusækni og koma böndum á sjálftöku og græðgi samhliða því að réttarstaða lántakenda gagnvart lánakjörum og skilmálum verði bætt.

Þessar tvær áskoranir voru samþykktar á aðalfundi Samfylkingarinnar á Akureyri sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert