Símar seldust upp á rúmri mínútu

iPhone 4.
iPhone 4.

Tuttugu iPhone símar, sem boðnir voru til sölu á heimasíðunni hopkaup.is, seldust upp á 1 mínútu og 36 sekúndum þegar opnað var fyrir tilboðið á miðnætti.

Símarnir voru boðnir á 99.900 krónur. 

Í tilkynningu frá Hópkaupum.is segir, að mikið álag hafi myndast á netþjóni Hópkaupa rétt fyrir miðnætti en tæknifólki hafi tekist að halda netþjóninum gangandi og tilboðið hófst. 

hopkaup.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert