Ný matvöruverslun á að veita raunverulega samkeppni

Griffil á að opna á ný í öðru húsnæði.
Griffil á að opna á ný í öðru húsnæði. mbl.is/Ómar

Eiríkur Sigurðsson, stofnandi og fyrrverandi eigandi 10-11-verslananna, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að hann myndi á vordögum opna nýja matvöruverslun í Skeifunni 11.

Hann vildi ekki gefa mikið upp um viðskiptahugmyndina en gaf þó til kynna að verslunin myndi hrista upp í markaðnum. „Þessi verslun kemur til með að veita raunverulega samkeppni á markaðnum,“ segir Eiríkur í Morgunblaðinu í dag.

Í Skeifunni 11 er nú til húsa verslunin Griffill en leigusamningur hennar rennur út 1. apríl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert