Útibú Byrs opnað í fyrramálið

Byr sparisjóður  mun opna útibú að Hafnargötu 90, Reykjanesbæ, klukkan 9 í fyrramálið. Í útibúinu koma til með að starfa fjórir af fyrrum starfsmönnum SpKef sparisjóðs, undir stjórn Ásdísar Ýrar Jakobsdóttur.

Fram kemur í tilkynningu, að eftir að fyrir lá að SpKef myndi sameinast Landsbankanum, hafi Byr fundið fyrir miklum vilja meðal fyrrum viðskiptavina SpKef til að vera hjá sparisjóði og telji Byr sig geta veitt þá persónulegu þjónustu sem Byr og sparisjóðirnir hafa haft að leiðarljósi í meira en 100 ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert