Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi í júní 2009 staðið að „árás á ríkissaksóknara og embætti hans“ og þessi árás hafi verið bæði óviðeigandi og tilefnislaus.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Valtýr birti á heimasíðu embættisins vegna orða sem forsætisráðherra lét falla um helgina í kjölfar ræðu sem Valtýr hélt á fundi um ákæruvaldið í síðustu viku.
„Í þessu sambandi skal rifjað upp að með bréfi, dagsettu 18. maí 2009, vék ég sæti í öllum málum sem lutu að embætti sérstaks saksóknara. Forsætisráðherra tilkynnti engu að síður í sjónvarpi 10. júní 2009 að mér bæri að víkja alfarið úr starfi. Þennan dag var ég staddur erlendis á fundi ríkissaksóknara Norðurlandanna sem fylgdust agndofa með aðförunum. Ég tel að árás á ríkissaksóknara og embætti hans með þessum hætti hafi verið bæði óviðeigandi og tilefnislaus.
Hlutverk ákæruvaldsins í samvinnu við lögreglu er að skapa öruggt
samfélag. Það var ábyrgðarhluti að grafa undan embætti ríkissaksóknara
með því að skapa óþarfa tortryggni eftir að ríkissaksóknari hafði
sjálfur tekið ákvörðun um að víkja sæti. Á þeim tíma sem þetta gerðist
var loft lævi blandið. Ráðist var á heimili manna, málningu skvett á hús
og bíla að næturlagi og fleiri skemmdarverk unnin. Fordæmingu
stjórnvalda á því að menn tækju lögin í sínar hendur á þennan hátt
skorti að mestu leyti. Í þjóðfélaginu ríkti ótti og tortryggni. Því var
hætta því samfara að kalla yfir sig reiði stjórnvalda. Ég taldi hins
vegar ekki rétt, eins og alkunna er, að verða við kröfu
forsætisráðherra.
Í frétt sjónvarpsins 18. febrúar 2011 fagnaði forsætisráðherra
niðurstöðu héraðsdóms í máli níumenninganna og taldi það mistök að ákært
hefði verið með þeim hætti sem gert var. Að þessu fann ég í ræðu minni
og benti á að gagnrýnin væri óheppileg vegna þrýstings sem hún skapaði á
settan ríkissaksóknara áður en áfrýjunarfrestur í málinu væri liðinn.
Eins og sjá má í ræðunni var ekki minnst á að forsætisráðherra hafi
beitt sér fyrir því að ekki var áfrýjað í málinu eins og gefið var í
skyn í fréttinni.
Að þessu virtu tel ég enga ástæðu til að draga til baka þau orð mín sem fram koma í ræðunni. Þvert á móti taldi ég nauðsynlegt að gera þessu skil í ræðu minni í tengslum við umræðu um sjálfstæði ákæruvaldsins. Sú nauðsyn hefur ekki minnkað,“ segir Valtýr í yfirlýsingu sinni.