Flytur skýrslu um úrskurð kærunefndar

Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun flytja Alþingi í dag munnlega skýrslu um  úrskurð kærunefndar jafnréttismála, sem komst að þeirri niðurstöðu að forsætisráðuneytið hefði brotið jafnréttislög með skipun í embætti skrifstofustjóra.

Jóhanna flytur skýrslu sína um eftir óundirbúnar fyrirspurnir og atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu um stjórnlagaþing en þingfundur hefst klukkan 10:30 í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert