Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er á meðal efstu liða í átakinu mottumars sem lýkur um helgina, en safnað er áheitum á síðu Krabbameinsfélagsins, mottumars.is.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að þetta átak hafi gert sitt til að opna umræðu um karla og krabbamein. Menn séu óhræddari að ræða þessa hlut. Hann hrósar Krabbameinsfélaginu fyrir framtakið.
Fjallað er um Mottumars í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og birtar myndir af mönnum sem skarta glæsilegum mottum.