Bíll valt af Þjóðvegi 1 við bæinn Hvamm í Langadal, skammt frá Blönduósi, nú síðdegis. Einn var í bílnum og er hann nú á leið til Akureyrar til aðhlynningar. Hann var við meðvitund þegar lögreglan kom á slysstað. Er talið að hann hafi hlotið slæmt beinbrot á hægri fæti.
Ekki er vitað um tildrög slysins, en bíllinn ók utan í snjóskafl í hlið vegarins og þaðan út af. Bíllinn fór út af á fullri ferð og valt þó nokkrum sinnum á um hundrað metra kafla.