Lögreglumenn á ómerktri lögreglubifreið á leið í verkefni veittu í síðustu viku athygli einkennilegu aksturslagi bifreiðar á Austurvegi á Selfossi.
Fylgst var með bílnum og ekki leið á löngu að snjóboltar flugu út um hliðarrúður bifreiðarinnar. Segir lögreglan á Selfossi, að greinilegt hafi verið, að ökumaðurinn var að kasta boltunum í bíla, sem urðu á leið hans.
Bílnum var veitt eftirför þar sem henni var ekið greitt inn á Bankaveg þar sem börn voru að leik í snjóruðningum við götuna. Þar er skóli og Sundlaug Selfoss. Þegar loksins tókst að stöðva ökumann bifreiðarinnar kom í ljós að hann og farþegi hans höfðu hnoðað marga snjóbolta og voru nokkrir þeirra í gólfinu hjá ökumanni.
Lögreglan segir, að þarna hafi fengist skýring á sveiflukenndum akstri ökumanns rétt áður en hann átti til að missa tök á akstrinum þegar hann var að teygja sig eftir snjóboltum.
Ökumaðurinn var færður í lögreglustöð þar sem hann var yfirheyrður. Hann verður kærður fyrir umferðarlagabrot.