Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að áætlun vegna skuldavanda fyrirtækisins sé í vinnslu og verði vonandi kynnt fljótlega.Hann vill þó lítið tjá sig um málið.
„Við erum að vinna að áætlun til þess að leysa vandann, en hún er ekki tilbúin en verður það vonandi sem allra fyrst.“
Aðspurður hvort segja þurfi upp fólki eða hækka gjaldskrár segist Bjarni ekki geta farið út í þá sálma. „Það er ekki hægt að segja til um það fyrr en búið er að klára áætlunina.“