Skrapp frá og tankurinn tæmdur

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ökumanni bifreiðar, sem lagt hafði verið fyrir framan fyrirtæki í Hafnarfirði í gær, brá heldur betur í brún þegar hann hugðist aka á brott, en á meðan hann sinnti erindagjörðum sínum var eldsneyti tekið af bílnum.

Þetta gerðist um átta leytið í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var tekið allmikið magn af eldsneyti af bílnum og hann skilinn eftir nánast með tóman tank.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert