Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný með komu flugsveitar kanadíska flughersins sunnudaginn 3. apríl.
Í frétt frá Landhelgisgæslunni segir að verkefnið sé í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Alls munu um 160 liðsmenn kanadíska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með 6 F18 orrustuþotur, auk eldsneytisflugvélar.
Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum 6. – 9. apríl.
Er þetta er í fyrsta sinn sem þjónusta íslenskra stjórnvalda vegna
loftrýmisgæslu er í umsjón Landhelgisgæslu Íslands en um áramót bættust
starfsmenn íslenska ratsjárkerfisins í hóp starfsmanna Landhelgisgæslunnar.