Margir til útlanda um páskana

New York er vinsæll áfangastaður um páskana.
New York er vinsæll áfangastaður um páskana. Reuters

„Bókanirnar eru mun fleiri en bæði í fyrra og hitteðfyrra, þannig að þetta gengur mjög vel,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express, um bókanir í utanlandsferðir um páskana hjá fyrirtækinu. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir aðsókn í utanlandsferðir um páskana hjá Icelandair vera „ljómandi góða.“

„Það er erfitt að bera þetta saman milli ára því að árstíminn skiptir svolitlu máli en heilt yfir líta páskarnir alveg ágætlega út,“ segir Guðjón. Í ár eru páskar nær vori en í fyrra og því ekki óeðlilegt að fleiri vilji halda út yfir hátíðirnar.

„Það er eiginlega allt að verða uppselt til New York, þannig að það virðist vera mikill áhugi á að sjá vorið þar um páskana,“ segir Kristín en einnig er töluvert bókað til Lundúna, Kaupmannahafnar og Berlínar.

Iceland Express
Iceland Express
Icelandair
Icelandair
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert