Laun hækkuðu um 4,7% í fyrra

Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 4,7% milli áranna 2009 og 2010 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 6% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 1,9%.

Þetta kemur fram í nýjum Hagtíðindum frá Hagstofunni.

Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun þjónustu-, sölu og afgreiðslufólks mest á milli ára eða um 7,2% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 3,6% til 8%. Mest hækkuðu laun í samgöngum og flutningum en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Vísitala launa 2010

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert