Olís hækkaði í dag verð á bensíni um 4 krónur og kostar 95 oktana bensín 235.80 kr per lítra hjá félaginu.
Önnur félög höfðu ekki hækkað verðið kl. 18 í dag. Þá kostaði lítrinn 231.80 kr. hjá N1 og 232.90 kr. hjá Shell. Lægst er verðið hjá Orkunni 231.40.