Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi krefst þess að ríkisstjórn Íslands taki undir kröfur Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um að tryggt verði að bygging álvers í Helguvík fari á full.
Í áskorun SAR er ríkisstjórnin krafin um pólitíska lausn sem gæti m.a. falið í sér ákvörðun um að Landsvirkjun komi strax að málum.
„Á Reykjanesi ríkir mesta atvinnuleysi á landinu. Það er skýlaus krafa SAR að þetta mál verði leist strax svo fyrirtæki og fjölskyldur á Reykjanesi sjái til sólar og þúsundir fái atvinnu.
Í fjárfestingarsamningi vegna byggingar álvers í Helguvík segir: „ríkisstjórnin skal svo fjótt sem unnt er gera það sem í hennar valdi stendur til að hjálpa verkefninu“.
Við þetta verður ríkisstjórnin að standa,“ segir í áskoruninni.