232.539 kjósendur eru á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-lögin á laugardag, 116.656 konur og 115.883 karlar.
Fram kemur á vef Þjóðskrár, að við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009 voru 227.843 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 4.696 eða 2,1%.
Kjósendur með lögheimili erlendis eru 11.608 eða 5% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 1667 frá síðustu alþingiskosningum eða um 16,8%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 3029 eða 1,4%.
Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í
fyrsta sinn frá alþingiskosningunum 2009 eru 9173 eða 3,9% af
kjósendatölunni.