Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur farið fram á það við innanríkisráðherra að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði aflétt og smærri skipum gefinn kostur á að veita þar þjónustu.
Elliði segir, að dýpi í Landeyjahöfn sé nú nánast orðið eins og til sé ætlast. Herjólfur risti hinsvegar meira en æskilegt sé.