76% þeirra sem taka þátt í könnun á Facebook-síðu mbl.is. um afstöðu til Icesave-samningsins ætla að segja nei en 24% ætla að segja já.
3294 hafa tekið þátt í könnuninni og ætla 689 að segja já, 2181 ætla að segja nei, 224 ætla ekki að kjósa og 200 hafa ekki tekið ákvörðun um hvernig þeir ætla að verja atkvæði sínu.
Ef aðeins eru teknir þeir sem taka afstöðu ætla 76% að segja nei og 24% já.
Þá er að finna á Facebook síður bæði þeirra, sem ætla að segja já og þeirra sem ætla að segja nei í kosningunni á laugardag. 9.600 hafa skráð sig inn á nei-síðuna en 2600 hafa skráð sig á já-síðuna.
Facebook-síða þeirra sem ætla að segja nei
Facebook-síða þeirra sem segja já við Icesave.