Nýlega lagði tollgæslan hald á töluvert magn af fölsuðum Gillette Fusion Power rakvélarblöðum, var um að ræða hraðsendingu frá Hong Kong.
Er þetta í fyrsta skipti sem tollgæslan hér á landi leggur hald á fölsuð rakvélarblöð en talið er líklegt aðblöðin hafi verið ætluð til sölu hér á landi.
Fram kemur á vef tollgæslunnar að reynst geti erfitt fyrir almenning að þekkja muninn og ekki fyrr en við rakstur að spurningar vakna um lögmæti vörunnar. Gott sé að hafa eftirtalin atriði í huga þegar spurningar vakna um mögulega fölsun. Ef að eitt eða fleiri atriði vekja athygli kaupandans er full ástæða til að íhuga hvort um sé að ræða falsaða vöru.
Íslensk Ameríska hefur umboð fyrir Gillette á Íslandi. Tekið er mjög hart á svona málum og leitað allra leiða til að hafa uppi á eftirlíkingum sem eru til sölu hér á landi. Þeir munu fyrir hönd framleiðanda fara í lögbannsmál gagnvart þeim sem flytja inn og/eða selja fölsuð eintök frá Gillette.