Hönnunarstofan Björg í bú hefur hannað sérstök Icesave-kerti. Með þeim má brenna upp Icesave á ljúfri kvöldstund, að sögn hönnunarstofunnar. Kertin lýsa jafnt þeim sem segja já og nei við Icesave.
„Tilefni til að kveikja á kertunum geta verið til að fagna niðurstöðu kosninganna eða brenna burt leiðindin sem hafa fylgt þessu langdregna máli.
Kertin fást í öllum Icesave litunum og á þeim öllum hefur Icesave grafið sig inn í kertin eins og það hefur grafið sig inn í þjóðarsálina að undanförnu,“ segir í tilkynningu frá Björg í bú.
Kertin eru framleidd á vernduðum vinnustað en Björg í bú umbreytir þeim í Icesave kerti.