Stjórnlagaráð sett

Ómar Ragnarsson, aldursforseti stjórnlagaráðs, ávarpar ráðið.
Ómar Ragnarsson, aldursforseti stjórnlagaráðs, ávarpar ráðið. mbl.is/Golli

Stjórnlagaráð var sett á hátíðlegan hátt nú klukkan 14:00.

Í Stjórnlagaráði sitja 25 fulltrúar og er þeim ætlað að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar, undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar 2010.

Á fundinum mun Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, afhenda Stjórnlagaráði skýrslu nefndarinnar þar sem fram koma meðal annars tillögur nefndarinnar um breytingar á stjórnarskránni. Stjórnlaganefnd, sem var kjörin af Alþingi 16. júní 2010, hefur þar með lokið störfum. Verkefni nefndarinnar voru m.a. að taka saman gagnasafn um stjórnarskrármálefni, standa að Þjóðfundi 2010 um stjórnarskrána og leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskrá.  

Eftir setningu Stjórnlagaráðs mun stjórnlaganefnd kynna fjölmiðlum efni skýrslunnar.  Setningin er opin almenningi meðan húsrúm leyfir. Stjórnlagaráð er til húsa í Ofanleiti 2, annarri hæð.

Hægt er að fylgjast með fyrsta fundi Stjórnlagaráðs í beinni útsendingu hér á heimasíðu ráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert