Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur friðað verkamannabústaðina við Hringbraut og mannvirki á
Héðinsvelli við Hringbraut að tillögu Húsafriðunarnefndar.
Verkamannabústaðirnir
við Hringbraut voru byggðir í þremur áföngum á árunum 1931-1937.
Markmiðið með byggingu þeirra var að tryggja almenningi aðgang að
vönduðum húsakosti og heilsusamlegu umhverfi. Fyrstu bústaðirnir voru
reistir í tveimur áföngum vestan Hofsvallagötu, eftir teikningum Guðjóns
Samúelssonar húsameistara ríkisins, og mynda þeir samfellda húsaröð
kringum stórt sameiginlegt port. Nokkrum árum síðar voru byggðar nokkrar
húsalengjur til viðbótar austan Hofsvallagötu, eftir teikingum
Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts.
Í tilkynningu
húsafriðunarnefndar kemur fram að umræddar byggingar séu einstakar í
íslenskri byggingarsögu. Þar birtust nýjungar í skipulagi bæði hins ytra
og innra umhverfis og hönnun sem markaði straumhvörf í íslenskri
byggingarlist. Friðunin nær til allra þriggja áfanganna og tekur til
garðveggja og ytra byrðis húsanna.