Lögregla hefur staðfestar heimildir fyrir því að menn sem tengjast glæpahópum hér á landi ætli sér að komast yfir skotvopn með ólöglegum hætti. Eigendum verslana sem selja vopnin hefur verið gert viðvart vegna málsins, en óttast er að mennirnir muni fremja vopnað rán til að komast yfir gripina.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að lögreglumenn kom við í þónokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær og greindu rekstraraðilum frá þessu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vöktuðu lögreglumenn verslanirnar yfir daginn úr fjarska.
Lögregla greindi ekki frá því í samræðum við rekstraraðilana hvaða menn eða hópar þetta væru. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins tengjast þeir þó að minnsta kosti einum glæpahópi.