ESB telur brýnt að Ísland aðlagi stjórn fiskveiða

Evrópusambandið telur mikilvægt að stjórn fiskveiða á Íslandi verði löguð …
Evrópusambandið telur mikilvægt að stjórn fiskveiða á Íslandi verði löguð að lögum ESB. mbl.is/RAX

Evrópusambandið telur mikilvægt að stjórn fiskveiða á Íslandi verði löguð að lögum Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sambandsins en þar er bent á að íslensk stjórnvöld hafi lýst yfir að stjórn sjávarútvegsmála verði að hluta áfram á Íslandi.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þessar upplýsingar alfarið rangar.

„Fullveldisréttindi Íslands varðandi efnahagslögsöguna eru algert grundvallaratriði í þessum samningaviðræðum,“ segir Jón og bætir því við að „mjög alvarlegt“ sé að Evrópusambandið gefi nú út slíka yfirlýsingu. Ekki náðist í utanríkisráðherra vegna málsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert