Tillaga um að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði hætt nú þegar var felld naumlega á flokksþingi Framsóknarflokksins nú síðdegis.
Um var að ræða breytingartillögu við tillögu að ályktun flokksþingsins um utanríkismál frá Sveinbirni Eyjólfssyni og Inga Birni Árnasyni, þar sem m.a. stóð að Framsóknarflokkurinn teldi hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins og leggði til að aðildarviðræðum og aðlögunarferli verði hætt nú þegar. Atkvæði voru greidd skriflega um breytingartillöguna og var hún felld með 169 atkvæðum gegn 164.
Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um aðra breytingartillögu, sem er frá Gísla Ólafssyni og Gesti Guðjónssyni um að þjóðin fái að taka upplýsta ákvörðun um stöðu Íslands í Evrópu að undangengnum aðildarviðræðum. Fast verði staðinn vörður um hagsmuni Íslendinga, sérstaklega í auðlinda- og landbúnaðarmálum. Náist þau markmið ekki telji Framsóknarflokkurinn að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins.
Í ályktunardrögunum, sem lágu fyrir þinginu stendur eftirfarandi um Evrópusambandið:
Ísland skal áfram leita eftir samstarfi við þjóðir innan og utan Evrópusambandsins á grundvelli frjálsra og sanngjarnra samninga og samvinnu sem byggir á jöfnuði og ábata allra aðila. Með slíkum samskiptum geta íslensk stjórnvöld tryggt hagsmuni Íslands best á hverjum tíma. Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Nú sem fyrr standa auðlindir þjóðarinnar undir velferð hennar og fullt og óskorað forræði á þeim er forsenda farsældar til framtíðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjóðin skuli ætíð eiga beina aðkomu með þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvörðunum um stórmál eins og aðild að Evrópusambandinu og mun berjast fyrir þeim rétti.