Kjörfundi er nú lokið í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin og er talning að hefjast í kjördæmunum sex. Búist er við fyrstu tölum um klukkan 23.
Kjörsókn í dag var yfirleitt mun betri en í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem fór fram um Icesave-lög á síðasta ári.