Kjörstaðir í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin voru víðast hvar opnaðir klukkan 9 og verða opnir til klukkan 10 í kvöld. Á nokkrum stöðum verða kjörstaðir opnaðir klukkan 10.
Alls eru 232.539 kjósendur á kjörskrá og eru konur eilítið fleiri en karlar. Þær eru 116.656 en þeir 115.883. Alls höfðu 24.409 greitt atkvæði utan kjörfundar í gærkvöldi, þar af um fimmtán þúsund í Laugardalshöllinni.
Talning atkvæða hefst klukkan 22 eftir að kosningu lýkur og er búist við fyrstu tölum á ellefta tímanum. Fylgst verður með talningunni og leitað viðbragða á mbl.is.