Þoka á Hellisheiði og í Þrengslum

Svartaþoka er á Hellisheiði og í Þrengslum.
Svartaþoka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Jim Smart

Varað er við mik­illi þoku á Hell­is­heiði og í Þrengsl­um. Á Suður- og Vest­ur­landi eru veg­ir greiðfær­ir. Á Vest­fjörðum eru veg­ir greiðfær­ir fyr­ir utan hálku­bletti á Hrafns­eyr­ar- og Dynj­and­is­heiði.

Greiðfært er á Norður­landi. Á Aust­ur­landi eru hálku­blett­ir á Öxi en ann­ars greiðfært. Á Suðaust­ur­landi eru veg­ir greiðfær­ir.

Hval­fjarðargöng verða lokuð vegna viðhalds aðfaranótt mánu­dags­ins 11. apríl, þriðju­dags 12.apríl, miðviku­dags 13. apríl, fimmtu­dags 14. apríl og föstu­dags 15. apríl frá klukk­an 24:00 til klukk­an 06:00 að morgni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka