Tveir fólksbílar fóru út af efst á Holtavörðuheiði í dag. Ökumaður og farþegi úr öðrum bílnum voru flutt á heilsugæslustöðina í Borgarnesi til aðhlynningar. Vont veður er á heiðinni, mjög hvasst og gengur á með éljum.
Atvik urðu með þeim hætti að bíll fór út af veginum. Fólk sem ók á eftir stoppaði til að gæta að veita aðstoð. Þá kom þriðji bíllinn og fór hann út af og valt einar tvær veltur. Ökumaður og farþegi í þeim bíl hlutu minniháttar meiðsl.
Mjög hvasst er einnig undir Hafnarfjallir og ekki gott ferðaveður.