„Í ljósi kosningaúrslita um helgina held ég að það séu aðrir sem ættu að íhuga stöðu sína innan flokksins“, segir Ásmundur Einar Daðason um Icesave vegferð Vinstri grænna. Hann segir það ótrúleg vinnubrögð að fella Guðfríði Lilju úr embætti þingflokksformanns Vg.
Hann segir að í Evrópusambandsmálum sé flokkurinn á vegferð sem fyrr eða síðar verði að endurskoða.