Bankastræti lokað tímabundið

Búið er að loka Bankastrætinu vegna framkvæmda við gatnamót Austurstrætis …
Búið er að loka Bankastrætinu vegna framkvæmda við gatnamót Austurstrætis og Lækjargötu. mbl.is/Júlíus

Bankastræti í Reykjavík verður lokað tímabundið neðan Skólastrætis fyrir umferð á morgun vegna lagfæringa á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu.

Yfirborð og snjóbræðsla hefur verið endurnýjuð á helmingi gatnamótanna og í fyrramálið hefst vinna við seinni hluta þeirra. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar, að áhersla sé lögð á að þessi vinna taki skamman tíma og verði henni lokið fyrir páska.

Endurgerð gatnamótanna er hluti af því að breyta Austurstræti í göngugötu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert