Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði við sjónvarp Bloomberg fréttastofunnar, að hann hefði ekki sérlegar áhyggjur af yfirlýsingum matsfyrirtækisins Moody's um að lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins kunni að lækka niður í ruslflokk ef Íslendingar höfnuðu Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Frammistaða Moody's við að meta lánshæfi Íslands er ömurleg því þegar íslensku bankarnir áttu í erfiðleikum gaf Moody's þeim AAA einkunn," sagði Ólafur Ragnar. „Ég held að Moody's ætti frekar að taka tillit til þess, að erlend stórfyrirtæki á borð við Rio Tinto og Alcoa vilji fjárfesta á Íslandi. Raunar hefur Rio Tinto nýlega tilkynnt, að fyrirtækið ætli að fjárfesta 5 milljarða dala í endurnýjun á álveri á Íslandi og fjárfestar frá Evrópu og Bandaríkjunum urðu í síðustu viku stórir hluthafar í stærsta skipafélaginu á Íslandi og íslenskum banka. Alþjóðlegir fjárfestar og fyrirtæki eru því að fjárfesta á Íslandi og Moody's ætti að taka tillit til þess," sagði Ólafur Ragnar.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sagði við fréttamenn við Stjórnarráðið í dag, að unnið sé að því innan Seðlabankans að erlend matsfyrirtæki lækki ekki lánshæfiseinkunn Íslands í kjölfar niðurstöðu Icesave-kosninganna.
Sagði Már í fréttum Bylgjunnar að bankinn væri í stöðugu sambandið við matsfyrirtækin, þó ekki hafi verið um að ræða formlega fundi. Vænta mætti frekari frétta af viðbrögðum matsfyrirtækja síðar í dag eða á morgun.