Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist líta á það sem grundvallarmál að virða rétt foreldra í fæðingarorlofi. Hann gagnrýnir að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hafi verið „svipt stöðu sinni“.
Ögmundur fjallar um kosningu formanns þingflokks VG á heimasíðu sinni í dag.
„Guðfríður Lilja Grétarsdóttir mætti í gær úr fæðingarorlofi og stóð ég
og fleiri í þeirri trú að hún tæki að nýju við sem þingflokksformaður
einsog hún var þegar hún fór í fæðingarorlofið. En á þennan veg fór það
ekki. Efnt var til atkvæðagreiðslu sem fór á þá lund að Árni Þór
Sigurðsson var kjörinn gegn fjórum atkvæðum til Guðfríðar Lilju. Þar með
hafði hún verið svipt stöðu sinni.
Hvers vegna tek ég þessi innanflokksmál upp hér á opnum vettvangi? Ég
geri það vegna þess að ég tel þetta ekki vera neitt einkamál - eða þess
vegna innanflokksmál.
Í verkalýðshreyfingunni þar sem ég var starfandi um langa hríð var litið
á það sem grundvallarmál, að virða rétt foreldra í fæðingarorlofi. Það á
ekki að geta gerst að einstaklingur í fæðingarorlofi sé sviptur starfi
sínu eða embætti og þegar sá hinn sami kemur til baka á hann að ganga
inn í sitt fyrra starf. Engu breytir þótt slik ákvörðunin sé tekin í
atkvæðagreiðslu. Það er ákvörðun engu að síður og að baki henni hvílir
ábyrgð,“ segir Ögmundur.