Laust fyrir sjö í morgun mátti greina þrumur og eldingar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu er háreist skúraský sem gengur nú yfir svæðið hjá Bláfjöllum, sem útskýrir þetta.
Veðurstofan segir að það megi búast við fleiri þrumum og eldingum í dag, þær geti komið annað slagið.
Óveðrið sem skall á í gær hefur að mestu gengið niður á landinu öllu. Reikna má þó með éljagangi á höfuðborgarsvæðinu í dag.