Svæðisfélag VG á Vestfjörðum hefur boðað til félagsfundar á veitingastaðnum Vesturslóð á Ísafirði kl 18 í dag til að fjalla um viðbrögð við samþykki Ásmundar Einars Daðasonar á vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina og úrsögn hans úr þingflokki VG.
Ásmundur Einar, sem er þingmaður VG í
Norðvesturkjördæmi, sagði sig í dag úr þingflokki VG og ætlar að starfa á þingi sem óháður þingmaður. Hann verður þó áfram í Vinstrihreyfingunni-grænu framboði.