Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að það sé mikil eftirsjá að Ásmundi Einari Daðasyni, sem ákvað í gær að segja sig úr þingflokki VG og hætta stuðningi við ríkisstjórnina.
Á vefsíðu sinni skrifar Ögmundur að hann sé að sjálfssögðu ósammála Ásmundi um afstöðuna til ríkisstjórnarinnar.
„Í sjálfu sér þarf engum að koma á óvart ákvörðun Ásmundar Einars því hann hefur um langan tíma verið þungorður í garð ríkisstjórnarinnar og gagnrýnt sinn eigin flokk, VG, fyrir að bregðast hugsjónum sínum. Þar hefur Ásmundur Einar einkum staðnæmst við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Sjálfur er hann formaður Heimssýnar, samtakanna sem berjast gegn aðild að ESB og fyrir fullveldi Íslands, og hefur hann margoft lýst því yfir að þetta sé það málefni sem heitast brenni á sinni pólitísku samvisku,“ skrifar Ögmundur.
Hann segir að Ásmundur Einar sé hugsjónamaður, ungur eldhugi, sem tekið hafi
erfiða ákvörðun í samræmi við sína bestu sannfæringu og hugsjón. „Ég óska
honum alls hins besta um ókominn tíma,“ skrifar Ögmundur.