Enn er fundað í Karphúsinu og engin niðurstaða komin um það hvort skrifað verði undir skammtímasamninga í kvöld. Enn fremur liggur ekki enn fyrir hvort þeir muni þá gilda fram til 15. júní eða fram á haust.
Stíf fundarhöld hafa verið fram eftir kvöldi og samningamenn hafa aðeins sést í mýflugumynd þar sem þeir skjótast inn og út af fundum.