Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu á fimmtugsaldri í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela pela af Jack Daniel's viskíi úr vínbúð í Reykjavík.
Fram kemur í dómnum að konan sagðist ekkert muna eftir atburðum en þegar henni var sýnd myndbandsupptaka játaði hún brot sitt greiðlega.