Bæjarsjóður Reykjanesbæjar skilaði 639,7 milljón króna rekstrarhagnaði árið 2010, samkvæmt ársreikningi bæjarins sem lagður var fram í bæjarstjórn í dag. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæð um tæpar 351 milljónir króna.
Samstæða Reykjanesbæjar, sem telur auk bæjarsjóðs aðrar stofnanir bæjarins, s.s. HS veitur, Reykjaneshöfn og félagslegar húseignir, er hagstæð um 322,5 milljónir króna, segir á vef sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir og fjármangsliði (EBITDA) er jákvæð um 2,1 milljarð króna eða 17,8%.
Rekstrartekjur Reykjanesbæjar námu alls 11,8 milljörðum. Þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs um 7,2 milljörðum króna.
43 milljarða skuldir
Heildareignir Reykjanesbæjar námu um 52,1 milljörðum kr. í árslok 2010. Heildarskuldir Reykjanesbæjar námu um 43,4 milljörðum kr. en þar með eru taldar m.a. skuldir HS veitna og framreiknaður leigukostnaður til næstu 25 ára. Í lok árs 2010 mældist eiginfjárhlutfall samstæðu 16,79% en bæjarsjóðs 19,07%.
„Verkefnið framundan er að styrkja lausafjárstöðu og eigið fé sveitarfélagsins. Um 19 milljarða króna peningalegar eignir bæjarins, utan lögbundinna verkefna sveitarfélaga, geta styrkt lausafjárstöðu og lækkað skuldir verulega. Aðgerðir á þessu ári (2011) munu styrkja eiginfjárstöðu Reykjanesbæjar umtalsvert.
Raunhæfustu leiðirnar til styrkingar á fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar eru virkjun þeirra mörgu atvinnutækifæra sem bærinn hefur barist fyrir undanfarin ár," segir á vef Reykjanesbæjar.