Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir í viðtali við páskablað DV, að ekkert fararsnið sé á henni úr pólitíkinni. Hún ætli að gefa áfram kost á sér áfram sem formaður Samfylkingarinnar í haust.
Jóhanna segist í viðtalinu geta hugsað sér að þjóðin fái að kjósa í senn um
niðurstöður stjórnlagaráðs og fiskveiðistjórnunarkerfið seint á árinu.